Seal Travel is a travel agency in Hvammstangi

Experience Hvammstangi and The Seal Circle

Haustferð

Færeyjaferð með Guðmundi Hauki og Röggu 29. september 2021

Dagur 4
Færeyjar
Hópurinn
North Wind

Haustferð til Færeyja með Guðmundi Hauki og Röggu hjá North Wind í samvinnu við Seal Travel á Hvammstanga.

Tími 29. september – 5. október 2021
Ferðir með Norrænu og gisting í tveggjamanna klefum. Gisting á Hótel Brandan, nýju fjögurra stjörnu hóteli í miðbæ Þórshafnar í fjórar nætur með morgunverðarhlaðborði og sameiginlegum þriggja rétta kvölverði fyrsta kvöldið.

  1. Miðvikudagur 29. september. Lagt af stað frá Hvammstanga klukkan 8.00. Ekið sem leið liggur til Seyðisfjarðar með leiðsögn, en þar þurfum við að vera mætt klukkan 17.30 til að fara um borð í Norrænu. Á leiðinni austur verður stoppað á nokkrum stöðum svo sem kaffipása á Akureyri og snædd kjötsúpa á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. (ekki innifalin)
  2. Fimmtudagur 30. september. Við gistum í tveggja manna klefum um borð í Norrænu. Þar er enginn matur innifalinn, en hægt er að velja um veitingastaði í ýmsum verðflokkum. Þar er líka fríhöfn með margskonar varningi. Komum að bryggju í Þórshöfn í Færeyjum um kl. 15.00 eftir 19 klukkustunda siglingu. Innritum okkur á Hótel Brandan sem er nýtt fjögurra stjörnu hótel þar sem við dveljum í 4 nætur. Förum í stutta skoðunarferð um miðbæ Þórshafnar og skoðum m.a. Tinganesið, elsta hlutann. Heimsækjum síðan hið forna höfuðból og biskupssetur Kirkjubæ með miklum sögulegum minjum áður en við snæðum þriggja rétta kvöldverð á Hótel Brandan sem er innifalin í verðinu.
  3. Föstudagur 1. október. Nú er ferðinni heitið gegnum tvenn neðansjávargöng, Austureyjar- og  Norðureyjagöngin til Klakksvíkur á Borðey með viðkomu í Göta til að skoða styttu af Þrándi í Götu.. Skoðum m.a. kirkjuna í Klakksvík og kíkjum kannski á barinn hjá Sigurði Ottóssyni frá Borðeyri Einnig heimsækjum við fámennt byggðarlag á eyjunni Kunoy, ökum yfir að Viðareiði á Viðarey nyrstu byggð Færeyja og skoðum fleiri áhugaverða staði.
  4. Laugardagur 2. október. Í dag ökum um göngin yfir á Austurey og byrjum á að skoða lítið þorp Æðurvík og virðum fyrir okkur vindmyllurnar á hálsinum. Komum síðan við í Tóftum og förum þar í ullarvöruverslunina Navia hjá Óla sem býður upp á gott úrval af færeyskum vörum og hönnun að sjálfsögðu með sérkjörum fyrir Íslendinga. Þá liggur leiðin um Funnigsfjörð og yfir heiði í nágrenni Slægtaratinds til Gjógv. Þar skoðum við afskekkt þorp og náttúrulega merkilega höfn í gjá. Síðan er ekið yfir Eiðisskarð til Eiði og á þeirri leið virðum við fyrir okkur steindrangana Risann og Kerlinguna. Heimsækjum, síðan hið dásamlega þorp Tjörnvík, göngum um götur og skoðum gömul hús og kannski tekst okkur að komast í vöfflukaffi hjá Hans Espen gömlum sjóara af Íslandsmiðum
  5. Sunnudagur 3 október.  Á þessum degi kynnum við okkur aðallega eyjarnar Straumey og Vogar. Ökum um neðansjávargöng yfir til Vogar og heimsækjum þar m.a. þorpið í Gásadal, þar sem búa um 15 manns með eigin jarðgöng. Kíkjum á Múlafossur. Í Gásadal heimsækjum við lítið handverksverkstæði sem sérhæfir sig í vinnslu úr færeyskri ull og gærum, en þar ræður ríkjum Íslendingurinn Gísli Hraunfjörð ásamt færeyskri konu sinni Ann Árnastein. Kannski fá þeir sem vilja smá kennslu í handverki og ef til vill aðeins að smakka þjóðarréttinn skerpukjöt. Í lok dags heimsækjum við þorpið Vestmanna á Straumey.
  6. Mánudagur 4. október. Eftir staðgóðan morgunverð á Hótel Brandan pökkum við saman setjum farangurinn í kerruna og förum í rútuna. Á leiðinni til skips stoppum við og skoðum hið glæsilega Norðurlandahús í Þórshöfn. Eins geta þeir sem vilja kíkt í búðir ef áhugi er á því eða bara skoðað mannlífið. Mætum við skipshlið á Norrænu upp úr hádegi og siglum af stað til Íslands um klukkan. 14.00. Ýmislegt er hægt að gera sér til skemmtunar um borð í ný endurbyggðri og stækkaðri Norrænu og kíkja í fríhöfnina og kaupa tollinn.
  7. Þriðjudagur 5. október. Við leggjumst að bryggju á Seyðisfirði um klukkan 09.00 og ökum með tilheyrandi stoppum til Hvammstanga en þangað komum við vonandi um kvölmatarleytið.

 

Umsagnir frá síðustu ferðum:

 “Ferðina fór ég með Guðmundi Hauk og Ragnheiði Sjöfn (Röggu). Þetta var mjög vel heppnuð ferð, vel skipulögð. Bílstjóri (Guðmundur Haukur) og leiðsögumaður(Ragga) einstaklega liðleg og hjálpsöm við farþega. Við fórum víða og sáum ótrúlega margt á stuttum tíma. Hópurinn góður, en veðrið hefði mátt vera skemmtilegra, en þetta eru nú Færyjar.
Ég mæli eindregið með svona ferð.
Takk fyrir mig.”
– Ólöf

“Í haust var ég svo heppin að fara til Færeyja með Guðmundi Hauk – mig hafði lengi langað til að fara þangað og tók því þess vegna fagnandi þegar boðið var upp á slíka ferð. Í stuttu máli stóðst ferðin algjörlega undir væntingum. Fallegt landslag og skemmtilegir ferðafélagar. Að sjálfsögðu er ekki hægt að gera allt á stuttum tíma EN þá er bara að fara aftur. Eins ræður maður aldrei við veðurguðina en ferðin var mjög skemmtileg í alla staði. TAKK fyrir mig.”
– Ása

“Mæli með fyrirhugaðri Færeyjaferð með Guðmundi Hauk, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Röggu Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir 10.-16.apríl nk. Ég fór í Færeyjaferð með þeim og góðum ferðafélögum sl haust og gef þeim mín bestu meðmæli.”
– Kristín

“Þetta er búin að vera afskaplega skemmtileg ferð og vel heppnuð í allastaði. Mæli alveg sérstaklega með svona ferð með þeim Guðmundi Hauki og Ragnheiði Sjöfn. ”
– Halldóra

Verð í tvíbýli 179.000 kr á mann og í einbýli 209.000 kr.

Skráning í ferðina er hjá Guðmundi Hauki í síma 893 4378 eða á netfanginu info@northwind.is í síðasta lagi 14. júlí nk.

Þátttakendur þurfa að staðfesta þátttöku með greiðslu 60.000 kr  inn á reikning Sealtravel í síðasta lagi 4. ágúst og greiða ferðina að fullu í síðasta lagi 2. september.

Síðustu þrjár ferðir seldust fljótt og vel

Fyrstur kemur, fyrstur fær

Munið, bókið í síðasta lagi 14. júlí !